Fimmtán stiga tap í fyrsta leik á Póllandsmótinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. ágúst 2015 19:58 Craig Pedersen, landsliðsþjálfari, ræðir við sína menn í leiknum í dag. mynd/kkí
Ísland tapaði fyrir Póllandi, 80-65, í fyrsta leik sínum á æfingamóti í Póllandi í kvöld. Þetta var 500. landsleikur íslenska karlalandsliðsins í körfubolta frá upphafi. Pólska liðið var með undirtökin allan leikinn og leiddi með 11 stigum, 20-9, undir lok 1. leikhluta. Logi Gunnarsson náði að minnka muninn í 20-12 fyrir leikhlutaskiptin en Njarðvíkingurinn var stigahæstur í íslenska liðinu í kvöld með 19 stig. Ísland spilaði betur í 2. leikhluta og minnkaði forystu pólska liðsins jafnt og þétt. Og 40 sekúndum fyrir hálfleik minnkaði Logi muninn í eitt stig með þriggja stiga körfu. Íslenska liðið hélt í við heimamenn framan af 3. leikhluta en í stöðunni 44-42 kom góður kafli hjá Pólverjum sem gerðu átta stig í röð og komust 10 stigum yfir, 52-42. Átta stigum munaði á liðunum fyrir fjórða og síðasta leikhlutann. Íslenska liðið hóf lokaleikhlutann á 7-1 spretti og Hlynur Bæringsson minnkaði muninn í fimm stig, 60-55, þegar sjö mínútur voru eftir af leiknum. En þá kom bakslag og Pólverjarnir reyndust sterkari á lokasprettinum. Og svo fór að heimamenn unnu 15 stiga sigur, 80-65. Logi var sem áður segir stigahæstur í íslenska liðinu með 19 stig en Jón Arnór Stefánsson kom næstur með 12 stig. Hlynur átti einnig góðan leik með 10 stig, 12 fráköst og sex stoðsendingar. Pavel Ermonlinskij var hvíldur í dag vegna smávægilegra meiðsla. Ísland mætir Líbanon í öðrum leik sínum klukkan 15:30 á morgun. Á sunnudaginn mætir íslenska liðið svo því belgíska í síðasta æfingaleik sínum fyrir EuroBasket á sunnudaginn klukkan 13:30.
EM 2015 í Berlín Mest lesið „Gaman að skora og ég held að allir viti hvað Víkingur er fyrir mér“ Sport Kane afgreiddi Brassana Fótbolti Eina konan í tækninefnd FIFA á HM: Ég er langsigursælust af þeim öllum Fótbolti „Ég hef aldrei séð aðrar eins tölur“ Fótbolti Paul Ince ákærður fyrir ölvunarakstur Fótbolti Uppgjörið: KR - FH 3-2 | Eiður Gauti hetja KR-inga Íslenski boltinn Íslandsmeistarar krýndir á Íslandsmótinu í hestaíþróttum Sport Sextán manns í fullu starfi við að þjónusta Ronaldo Fótbolti Joao Pedro til Chelsea Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Afturelding 2-1 | Víkingar sluppu með skrekkinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum Sjá meira