Lífið

Krúttlegur Bieber undir áhrifum hláturgass

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Bieber veit að það þarf að sinna þessum skjannahvítu tönnum.
Bieber veit að það þarf að sinna þessum skjannahvítu tönnum. mynd/skjáskot
Hefurðu oft velt því fyrir þér hvernig englabossinn Justin Bieber myndi haga sér eftir að hafa fengið vænan skammt af hláturgasi? Þá er heppnin með þér því að söngvarinn undirgekkst jaxlatöku um helgina og eins og poppstjörnum sæmir þurfti hann að deila því með umheiminum.

Í myndböndum sem Bieber deildi á Snapchat, og berja má augum hér að neðan, má sjá söngvarann í tannlæknastólnum skömmu áður en hann undirgekkst aðgerðina.

Sjá einnig: Bieber berar bossann á Bora Bora

Félagar hans eru með í för, einn á myndavélinni og annar að nudda stjörnuna sem sjálfir er undir áhrifum deyfilyfja og tjáir áhorfendum að hann muni fljótlega sofna. „Þau eru að fara að lyfja mig. Mun líklega finna fyrir því,“ segir hinn hálfvankaði Bieber. 

Justin Bieber Via SnapChat (SnapChat: RickTheSizzler)

A video posted by Justin Bieber Updates™ (@justinbiebertracker) on

Justin Bieber Via SnapChat (SnapChat: RickTheSizzler)

A video posted by Justin Bieber Updates™ (@justinbiebertracker) on

Justin Bieber Via SnapChat (SnapChat: RickTheSizzler)

A video posted by Justin Bieber Updates™ (@justinbiebertracker) on

Síðar þakkaði hann hinum nuddandi félaga sínum fyrir á Instagram-reikningi sínum og ljóst er að aðdáendur goðsins eru þakklátir hjálparhellunni en rúmlega milljón manns hafa lækað myndina af Micah Cravahlo.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Bieber hefur gert garðinn frægar í tengslum við tannheilsu en árið 2010 lék Bieber í frægri endurgerð myndbandsins 'David after Dentist“ en 44 milljónir manna hafa horft á túlkun söngvarans.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.