Góðar tölur úr laxveiðiánum á liðinni viku Karl Lúðvíksson skrifar 18. júlí 2015 10:00 Norðurá er það sem af er sumri aflahæst veiðiánna
Laxveiðin hefur tekið vel við sér á stækkandi straum og þá sérstaklega á vesturlandi þar sem nokkrar ár stefna í gott sumar. Veiðin í Norðurá hefur verið afskaplega góð og áin er sú fyrsta til að fara yfir 1000 laxa múrinn en það styttist þó óðum í að fleiri ár nái því marki. Blanda er komin yfir 1000 laxa líka en staðfestar tölur náðust ekki úr ánni í dag. Þverá og Kjarrá ná því líklega í næstu viku ef fram fer sem horfir og það efast síðan engin um að Rangárnar geri það ekki líka. Haffjarðará hefur skilað fínni veiði og er almennt góður gangur í henni. Sama má segja um nágranna hennar Langá en hún átti versta "fallið" í fyrra en er líka sú á sem nær bestri uppsveiflu á milli ára. Miklar göngur hafa verið í Borgarfjarðarárnar þótt þær séu almennt seinna á ferðinni en það er þó mikill léttir hjá veiðimönnum þetta árið þegar smálaxinn mætir úr hafi, ekki bara vel haldinn heldur í góðu magni. Erfitt er að spá fyrir um framhaldið en þó sést það nokkuð vel að flestar árnar eigi eftir að eiga gott meðalár. Nokkrar árnar eru ekki ennþá komnar almennilega í gang en það verður að reikna með því að þær verði þá bara aðeins seinni til en vant er eins og með þær ár sem fóru seint af stað í sumar en blómstra nú sem aldrei fyrr. Hér er listi yfir topp 10 árnar hjá Landssambandi Veiðifélaga. Listann í heild sinni má finna hér. Norðurá 15. 7. 2015 1068 15 924 Blanda 15. 7. 2015 993 14 1931 Þverá + Kjarará 15. 7. 2015 735 14 1195 Miðfjarðará 15. 7. 2015 649 10 1694 Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki. 15. 7. 2015 502 20 3063 Langá 15. 7. 2015 475 12 595 Haffjarðará 15. 7. 2015 407 6 821 Elliðaárnar. 15. 7. 2015 238 6 457 Laxá í Aðaldal 15. 7. 2015 229 18 849 Flókadalsá, Borgarf. 15. 7. 2015 215 3 343
Mest lesið Maðkahallæri á suðvesturhorninu Veiði Vikuveiði upp á 635 laxa Veiði Lokatalan 6068 laxar í Miðfjarðará Veiði Kaldakvísl eftirsótt og uppseld í sumar Veiði Hreinsunardagur Elliðaánna verður 7. júní Veiði Lokatalan í Straumunum Veiði Gott skot í Kjósinni Veiði Gunnar Bender með nýjan veiðiþátt Veiði Nokkrar lokatölur og orð um aflabrest í hafbeitinni Veiði Hálendisveiðin gengur vel Veiði