Tíska og hönnun

Raheem Sterling í íslenskri hönnun

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér má sjá Sterling í bolnum.
Hér má sjá Sterling í bolnum. vísir
Raheem Sterling, leikmaður Liverpool, klæddist íslenskri hönnun á dögunum. Hann hefur verið mikið í fjölmiðlum ytra, þar sem leikmaðurinn er hugsanlega á leiðinni frá Liverpool.

Á meðfylgjandi mynd sést hann fyrir utan heimili sitt í stuttermabol með hettu frá íslenska tískufyrirtækinu Inklaw Clothing.

Inklaw Clothing var stofnað af tveimur tvítugum strákum frá Hafnafirði, þeim Guðjóni Geir Geirssyni og Róberti Ómari Elmarssyni. Inklaw hóf störf í júní 2013 og hefur í dag selt vörur sínar til viðskiptavina í yfir 40 löndum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.