Íslendingahátíð á Parken í sigri FCK Anton Ingi Leifsson skrifar 19. apríl 2015 19:27 Rúrik getur leyft sér að fagna í kvöld. vísir/getty
Fimm Íslendingar komu við sögu í 2-0 sigri FCK á Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en einn sat á bekknum og stýrði öðru liðinu. Adam Örn Arnarsson og Guðmundur Þórarinsson voru í byrjunarliði Nordsjælland sem lenti undir á 40. mínútu. Ludwig Augustinsson gaf þá frábæra fyrirgjöf frá vinstri og Nicolai Jörgensen stangaði boltann í netið. Á lokamínútu fyrri hálfleiks skoraði Jörgensen aftur. Hann skoraði þá af vítapunktinum eftir að brotið var á Thomas Delanay. 2-0 í hálfleik og urðu það lokatölur. Ólafur Kristjánsson er að sjálfsögðu þjálfari Nordsjælland. Rúrik Gíslason kom inná sem varamaður hjá FCK á 58. mínútu og Björn Bergmann Sigurðarson á 72. mínútu. Guðmundur Þórarinsson var tekinn af velli eftir 77. mínútur, en Guðjón Baldvinsson kom inná sem varamaður hjá Nordsjælland síðustu sex mínúturnar. FCK er í öðru sæti deildarinnar, ellefu stigum á eftir FC Midtjylland sem er á toppnum og ellefu stigum á undan Bröndby sem er í þriðja sætinu. Nordsjælland er í sjötta sæti, en einungis þrjú stig eru upp í þriðja sæti deildarinnar.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið „Það hjálpar ekki neitt“ Handbolti Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Enski boltinn Króatísk goðsögn segir Dag og Cindric hafa lent í rifrildi Handbolti Setti Íslandsmet í klassískri bekkpressu í gær Sport Strákarnir okkar gætu verið ofar og neðar en Slóvenar á sama tíma Handbolti „Haukur og Einar ekki komnir til að vera í stúkunni“ Handbolti Svona hjálpaði Sara fótboltakonum að geta valið bæði fjölskyldu og fótbolta Fótbolti Martröð Norðmanna heima fyrir: „Gjörsamlega hræðilegt“ Handbolti Fowler með sína kenningu um þá samningslausu hjá Liverpool Enski boltinn Elliði skipti út rauðu skónum eftir rauðu spjöldin Handbolti Fleiri fréttir Elísabet tekin við Belgum Svona hjálpaði Sara fótboltakonum að geta valið bæði fjölskyldu og fótbolta Fowler með sína kenningu um þá samningslausu hjá Liverpool Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Neymar á heimleið? „Við erum mögulega lélegasta lið í sögu Manchester United“ Real Madrid á toppinn eftir þægilegan sigur Bjarki Steinn í fyrsta sinn í byrjunarliði Venezia Áttundi sigur Forest í síðustu níu leikjum Yfirlýsing frá City með stórsigri Onana með skelfileg mistök þegar United tapaði enn og aftur fyrir Brighton Cecilía hélt enn einu sinni hreinu og Inter vann Draumaendurkoma hjá Moyes á Goodison Park Misstu niður forystu þrátt fyrir að vera manni fleiri Fyrrverandi landsliðsmaður Englands mætir KSI í boxbardaga Segir Liverpool besta lið heims Antony á leið til Betis Fjármagnaði leikmannakaup Wimbledon með tölvuleikjaspilun Brynjólfur Willumsson á skotskónum í tapleik Groningegn Sex í röð hjá Napólí Juventus lagði AC Milan Ollie Watkins gerði Arsenal skráveifu Sjöunda tap Leicester í röð Núnez með tvö mörk í uppbótartíma Jónatan Ingi tryggði Val sigur á Fram Kluivert með þrennu í fyrsta leik dagsins Elísabet sögð vera að taka við belgíska landsliðinu FIFA setur forsetann í bann fyrir að kalla konu feita Haaland sagður fá yfir tólf milljónir í laun á dag næsta áratuginn Hákon skoraði í endurkomusigri Lille Sjá meira