María Ólafsdóttir á greiða leið í úrslit söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, ef marka má greiningu síðunnar ESCToday.
Matið er byggt á tölfræði og líkindum út frá gengi laga í undanriðlum Eurovision síðustu ára og hefur ekkert með gæði þeirra að gera. Bendir ritstjóri ESCToday, Helio Qendro, á að lagið sem er númer fjórtán í röðinni í öðrum hvorum undanriðlinum sé ekki endilega alltaf það besta en þó eigi það mestu líkurnar á að komast upp úr undanriðlinum því það er jafnan flutt þegar mesta áhorfið er á keppnina.
Þau lönd sem komast upp úr fyrri undanriðlinum samkvæmt þessum útreikningum eru: Armenía, Grikkland, Eistland, Tékkland, Ungverjaland, Danmörk, Albanía, Rúmenía og Georgía.
Löndin sem komast upp úr seinni undanriðlinum eru: Írland, Noregur, Portúgal, Makedónía, Lettland, Ísland, Svíþjóð, Sviss, Kýpur og Pólland.
Sjá einnig:María tólfta á svið
Best að vera fjórtándi í röðinni
85 prósent líkur eru á því að Albanía og Sviss fari upp úr sínum undanriðlum en bæði löndin eru þau fjórtándu í röðinni til að stíga á svið í fyrri og seinni undanriðlunum. Þau lönd sem hafa verið númer fjórtán í röðinni hafa 12 sinnum komist upp úr sínum riðlum í 14 tilraunum. María verður tólfta á svið í seinni undariðlinum.
Fulltrúi Moldavíu verður fyrstur á svið í fyrri undanriðlinum og fulltrúi Georgíu síðastur á svið og eru um helmingslíkur á að þær þjóðir sem eru fyrstar og síðastar á svið fari upp úr riðlinum. Í seinni undanriðlinum fellur það í skaut Pólverja og Slóvena að vera fyrstir og síðastir á svið.
YouTube-áhorfið talið gefa góða vísbendingu
Þá horfir ESCToday einnig til fjölda áhorfa á YouTube-myndbönd keppenda í Eurovision og er bent á að þeir sem hafa unnið keppnina í gegnum árin hafi verið afar vinsælir á YouTube í aðdraganda hennar. Eru nefndir sem dæmi sigurvegarar á borð við Conchitu Wurst, Emmelie de Forest og Loreen ásamt rússnesku ömmunum sem urðu í öðru sæti árið 2012.
Samkvæmt YouTube-áhorfi þá eru þessar þjóðir öruggar áfram úr fyrri undanriðlinum:
1. Rússland - 1.744.033
2. Albanía - 855.146
3. Armenía 779.617
4. Georgía - 404.279
5. Eistland - 375.343
6. Belgía - 357.343
7. Hvíta-Rússland - 272.353
8. Makedónía - 248.466
9. Serbía - 146.615
10. Moldavía - 129.341
Þessar þjóðir eru öruggar áfram úr seinni undariðlinum samkvæmt YouTube-áhorfi:
1. Aserbaídsjan 421.180
2. Svíþjóð - 331.131
3. Malta - 262.831
4. Ísrael - 252.625
5. Ísland - 228.667
6. Svartfjallaland - 133.779
7. Noregur - 130.804
8. Tékkland - 114.661
9. Litháen - 107.245
10. Slóvenía - 90.086.
Sjá einnig:Heyrðu öll lög í Eurovision 2015 hér
Keppnin í ár ein sú hægasta
Þá er einnig horft til hraða laganna í undanriðlunum en meðalhraði þeirra í ár eru 99 slög á mínútu og keppnin sögð ein sú hægasta undanfarinna ára. Til samanburðar má nefna að flest lög sem eru í útvarpsspilun í dag eru með 128 slög á mínútu að jafnaði.
ESCToday segir hraða laganna ekki hafa mikið um gæði þeirra að segja en þau sem eru „hressari“ eru talin eiga meiri líkur á góðum árangri í þessari löngu keppni.
Slög á mínútu í fyrri undanriðlinum:
Moldavía 103 slög
Armenía 121 slag
Belgía 90 slög
Finnland 95 slög
Grikkland 95 slög
Eistland 69 slög
Makedónía 120 slög
Serbía 129 slög
Ungverjaland 95 slög
Hvíta-Rússland 130 slög
Rússland 74 slög
Danmörk 125 slög
Rúmenía 98 slög
Georgía 71 slag
Samkvæmt þessu þá eru líkur Armeníu, Makedóníu, Serbíu, Hvíta-Rússlands og Danmerkur ágætar eftir horft er til slaga á mínútu.
Slög á mínútu í seinni undanriðlinum:
Litháen 128 slög
Írland 79 slög
San Marínó 77 slög
Svartfjallaland 97 slög
Malta 76 slög
Noregur 128 slög
Portúgal 109 slög
Tékkland 123 slög
Ísrael 115 slög
Lettland 108 slög
Aserbaídsjan 106 slög
Ísland 97 slög
Svíþjóð 124 slög
Sviss 70 slög
Kýpur 90 slög
Slóvenía 79 slög
Pólland 82 slög
Í seinni undanriðlinum gætu því Litháen, Noregur, Tékkland, Ísrael og Svíþjóð fengið einhver atkvæði fyrir að koma áhorfendum í gírinn og er Ísland einnig inni í þeim pakka ásamt Svartfjallalandi og Aserbaídsjan.
Íslandi spáð í úrslit
Samkvæmt þessari greiningu allri frá ESCToday þá eru líkur Armeníu, Eistlands, Rússlands og Albaníu ansi góðar í fyrri undanriðlinum. Aðrir sem eiga ágætis líkur í þeim riðli eru Makedónía og Georgía en talið er að Danmörk, Hvíta-Rússland og Moldavía geti komið á óvart.
Í seinni undariðlinu er talið að Svíþjóð, Noregur, Ísland og Ísrael eigi greiða leið í úrslitin en á eftir þeim koma Aserbaídsjan, Tékkland, Malta og Slóvenía.
Sjá spá ESCToday hér.
Spá Maríu öruggri leið í úrslitin

Tengdar fréttir

Eurovision 2015: Heyrðu öll lögin hér
Fjörutíu þjóðir berjast um sigurinn.

María Ólafsdóttir tólfta á svið
Á eftir Aserbaídsjan og undan Svíþjóð.