Tíska og hönnun

Mamma er mín fyrirmynd

Marín Manda skrifar
Andrea Sóleyjar og Björgvinsdóttir
Andrea Sóleyjar og Björgvinsdóttir
Lífið kíkti í snyrtibuddu Andreu Sóleyjar og Björgvinsdóttur en hún fer hvergi án kókos þurrsjampoo og segir að móðir sín sé fyrirmynd sín í snyrtimennsku og fínheitum.

„Anna og Fríða, vinkonur mínar í sveitinni, segja að þurrsjampó, ilmvatnið, eyelinerinn og alls konar naglalakk sé eitthvað sem ég sé aldrei án,“ segir Andrea Sóleyjar og Björgvinsdóttir sem rekur skemmtistaðinn Frón á Selfossi. 

B&B krem

Ein besta uppfinning aldarinnar, gerir kraftaverk bæði á morgnana og áður en ég mæti til vinnu á kvöldin. Það er svo hentugt því mér hefur aldrei líkað að nota púður eða meik.

Limited edt. cherry blossom frá Escada

Ilmvatnið mitt er algert möst.  Ég kvíði því þegar glasið klárast - því það er limited edition. 

Sjampoo

Þurrsjampó með kókoslykt frá Batiste Hárið mitt er fíngert og mér finnst það gefa fyllingu og verða auðveldara til að setja upp .



Eyelinerinn


Blautur H&M eyeliner Ég kaupi minnst tvo í einu. Ég hef þróað gríðarlega góða tækni og línan heppnast í hvert sinn.



Aldrei án slaufuhringsins og fisksins


Fiskurinn hennar Steinu frá Hring eftir Hring og lokkar og hringar af öllum gerðum eru ómissandi alla daga í vinnu og veislum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.