„Þetta verður geðveikt. Við reynum alltaf að toppa síðasta skiptið og það var ógeðslega gaman fyrir fimm árum. Þetta verður hápunktur sumarsins og flott að loka sumrinu þarna,“ bætir Herbert við. Hljómsveitin gaf nýverið út lagið Þú ert ein af þeim og segir Herbert að þeir ætli að bjóða upp á fleiri ný lög í Eyjum um verslunarmannahelgina. Skítamórall spilaði fyrst á Þjóðhátíð árið 1991 og man Herbert vel eftir því. Þá voru meðlimir sveitarinnar aðeins fimmtán ára gamlir.
„Við sættum okkur við allt og kipptum okkur ekkert upp við það þegar við vorum sóttir á pallbíl sem var fullur af fiski og þurftum við að sitja innan um fiskikörin. Svo fengum við ekki að heita Skítamórall. Árna Johnsen og þeim í þjóðhátíðarnefnd fannst það fulldónalegt nafn þannig að þeir tóku skítinn framan af nafninu og við hétum bara Mórall frá Selfossi.“

„Það var aldrei spurning þegar okkur bauðst að spila á Þjóðhátíð. Þetta er örugglega langskemmtilegasta gigg sem maður fær á Íslandi.“
Þetta er í fyrsta sinn sem sveitin spilar á Þjóðhátíð en sveitin var sigursæl á nýafstöðnum Hlustendaverðlaunum og sópaði til sín þrennum verðlaunum.
„Hinir strákarnir hafa farið áður á Þjóðhátíð að skemmta sér en ég hef aldrei farið þannig að þetta er aukagleði fyrir mig,“ bætir Jökull við.

„Við erum mjög spennt. Við höfum aldrei farið á Þjóðhátíð. Tónlistarstefnan okkar hefur ekki beint verið fyrir markhópinn á hátíðinni þannig að við vorum mjög ánægð með að vera beðin að spila. Við erum sérstaklega ánægð því það eru alltaf einhverjir fordómar gagnvart Þjóðhátíð þannig að þetta verður góð vísindaferð. Við erum mjög spennt fyrir því að prófa að spila fyrir nýtt fólk og ánægð með að fá þetta tækifæri,“ segir Alexandra, en árið er fullbókað hjá sveitinni.
„Við erum að spila rosalega mikið í sumar. Gítarleikarinn okkar, hann Arnar, er búinn að vera í Finnlandi í tvo mánuði og kemur heim á morgun. Við iðum í skinninu að komast í húsnæði og æfa saman. Við ætlum eiginlega að taka íslenskan festivalatúr í sumar og erum búin að bóka okkur á flestar hátíðir.“