Lífið

Vill að Cosby viðurkenni að hann sé „skrímsli“ og „svín“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Leikkonan Janice Dickinson sakar Cosby um að hafa nauðgað sér árið 1982.
Leikkonan Janice Dickinson sakar Cosby um að hafa nauðgað sér árið 1982.
Fjöldi kvenna hefur á síðustu misserum stigið fram og sakað leikarann Bill Cosby um að hafa misnotað sig kynferðislega.

Ein þeirra er leikkonan Janice Dickinson sem í gær veitti CNN viðtal en hún segir Cosby hafa nauðgað henni árið 1982. Í lok viðtalsins brotnaði Janice niður og sagðist ekki ráða við tilfinningar sínar.

Brot úr viðtalinu má sjá hér að neðan en þar lýsir Janice því að Cosby hafi gefið henni pillu vegna tíðaverkja þegar hún var gestur í boði hjá Cosby. Hún hafi svo tekið nokkrar myndir á Polaroid-myndavél sína en næst munað eftir sér með leikarann ofan á sér.


Tengdar fréttir

Cosby afboðar sig eftir ásakanir um nauðganir

Búið er að afboða komu Bill Cosby, leikara og grínista, í sjónvarpsþáttinn Late Show með David Letterman á CBS. Talið er að það tengist ásökunum um kynferðislegt ofbeldi og nauðgunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.