Lífið

Húsráð: Haltu jólatrénu fersku með þessum leiðum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Sumir kjósa að fella jólatré fyrir hver jól og elska fátt meira en ilminn af lifandi jólatré. Ef jólatré eru valin af kostgæfni og hugsað vel um þau geta þau enst í fimm vikur innandyra.

Hér eru fimm ráð sem vert er að fara eftir en það er Carolyn Forte hjá Good Housekeeping sem býður upp á þau:

1. Veljið heilbrigt, grænt tré með fáum, brúnum nálum

Rennið nokkrum greinum í gegnum fingur ykkar en nálarnar ættu að vera sveigjanlegar en ekki detta af. Því næst skaltu lyfta trénu upp og láta það falla á trjástofninn. Ef fáar nálar detta af því er tréð í góðu lagi. Svo er einnig gott að velja tré sem hefur verið geymt á skuggsælum stað en ekki í vetrarsólinni.

2. Snyrtið trjástofninn

Snyrtið trjástofninn þegar þið komið heim með tréð og setjið það í fötu af volgu vatni ef tréð á ekki að fara upp strax. Geymið tréð í óupphituðum bílskúr eða svæði sem er varið fyrir vind og frosti. Snyrtið trjástofninn aftur þegar tréð á að fara upp og setjið það í vatn.

3. Ekki setja það nálægt hita

Jólatréð má alls ekki fara upp nálægt arin, ofnum eða öðrum tækjum sem gefa frá sér hita. Þá getur tréð nefnilega þornað upp á skömmum tíma.

4. Vökvið tré nóg

Trjákvoða getur myndast á enda trjástofnsins ef tréð er ekki vökvað nóg. Þegar það gerist hættir tréð að sjúga í sig vatn og þornar upp á stuttum tíma. 

5. Takið tréð niður áður en það þornar upp

Ef þið bíðið of lengi verður gólfið þakið af greninálum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.