Lífið

Finnst gott að vera gift

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan Angelina Jolie prýðir forsíðu nýjasta heftis Vanity Fair en í viðtali við ritið opnar hún sig um hjónabandið með leikaranum Brad Pitt.

Angelina og Brad komu öllum í opna skjöldu þegar þau giftu sig í laumi í ágúst.

„Mér líður öðruvísi. Það er gott að vera hjón,“ segir Angelina en þau Brad höfðu verið par í níu ár áður en þau létu pússa sig saman.

Börn hjónanna, Maddox, 13 ára, Pax, 10 ára, Zahara, 9 ára, Shiloh, 8 ára og tvíburarnir Knox og Vivienne, 6 ára tóku þátt í athöfninni. Þau hjálpuðu foreldrum sínum líka að semja heit til hvors annars.

„Þau bjuggust ekki við því að við myndum aldrei rífast en þau létu okkar lofa því að biðjast alltaf afsökunar ef við rífumst,“ segir leikkonan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.