Hefna Keflvíkingar fyrir sópið í vor? - allt í beinni á Stöð 2 Sport Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2014 15:45 Kjartan Atli Kjartansson brýtur hér á Val Orra Valssyni í seríu liðanna í vor. Vísir/Stefán
Fyrsti mánudagsleikur vetrarins í Dominos-deild karla í körfubolta verður í beinni á Stöð 2 Sport klukkan 19.15 í kvöld þegar Keflvíkingar taka á móti Stjörnunni í TM-höllinni á Sunnubrautinni. Þetta er lokaleikur annarrar umferðar en Keflvíkingar eiga möguleika á því að vera með fullt hús eftir tvo leiki eins og Haukar, Tindastóll og KR. Stjörnumenn misstu niður nær unninn leik á heimavelli í tapi fyrir Tindastól í fyrstu umferð á sama tíma og Keflavíkurliðið vann seiglusigur á Skallagrími í Borgarnesi. Guðjón Guðmundsson og Svali Björgvinsson lýsa leiknum saman af sinni alkunnu snilld en útsending Stöðvar tvö hefst klukkan 19.00. Keflvíkingar eiga vissulega harma að hefna síðan í vor þegar Stjörnuliðið sópaði þeim út úr átta liða úrslitum úrslitakeppninni. Stjörnumenn unnu tvo af þessum þremur leikjum á Sunnubrautinni og Keflavíkurliðið vann ekki leik í úrslitakeppninni þrátt fyrir að vera með heimavallarétt í fyrstu umferð. Þetta var ennfremur þriðja árið í röð sem Stjörnumenn binda enda á tímabil Keflavíkurliðsins því Stjarnan vann einvígi liðann í átta liða úrslitunum 2012 og 2013. Keflavíkurliðið fékk að hugsa í allt sumar um flautukörfu Marvins Valdimarssonar í lokaleiknum síðasta vor en mögnuð þriggja stiga karfa Marvins tryggði Stjörnunni 94-93 sigur og sendi Keflvíkinga í sumarfrí. Bæði lið er nú með nýja þjálfara, Helgi Jónas Guðfinnsson er tekinn við liði Keflavíkur og Hrafn Kristjánsson þjálfar lið Stjörnunnar.
Dominos-deild karla Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald Íslenski boltinn Fékk hræðilegar fréttir nokkrum dögum fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira