10 hollráð fyrir Meistarmánuð

1. Skrifaðu markmiðin þín niður og hengdu á ísskápinn eða einhvers staðar þar sem þú sérð þau á hverjum degi. Margir setja líka upp bloggsíðu í mánuðinum og deila með öðrum hvernig gengur að ná markmiðunum.
2. Ekki setja þér of mörg markmið. Hafðu markmiðin skýr og raunhæf og ákveddu hvenær þú ætlar að klára hvert og eitt markmið.
3. Umkringdu þig öðrum meisturum og fáðu vini og fjölskyldu með í Meistaramánuð. Það eykur líkur á árangri margfalt.
4. Ef þú vilt breyta mataræðinu skaltu skipuleggja vikuna vel og kaupa í matinn fyrir alla vikuna. Það getur verið erfitt að standast freistingar svöng eða svangur í búðinni.
5. Stilltu vekjaraklukkuna fyrir alla vikuna og stattu við það að fara á fætur um leið og hún hringir. Ef fyrsti dagurinn er erfiður er hægt að hugga sig við að það verður auðvelt að sofna um kvöldið.
6. Ekki láta það eyðileggja allan mánuðinn þótt þú gleymir þér einu sinni. Byrjaðu strax aftur.
7. Brostu til fólksins í kringum þig. Það er ágætis vani.
8. Ekki setja þér bara markmið tengd heilsurækt. Notaðu tækifærið og tæklaðu það sem þú hefur alltaf ætlað að gera en hefur af einhverjum ástæðum frestað.
9. Komdu þér út fyrir þægindahringinn og lærðu eitthvað nýtt. Skráðu þig á námskeið eða reyndu eitthvað sem þú hefur alltaf haldið að þú gætir ekki.
10. Lifðu áfram eins og meistari. Taktu það besta úr Meistaramánuði með þér inn í hina mánuðina. 31 dagur er nógu langur tími til að búa til góða venju.
Tengdar fréttir

Fjölbreytt markmið í Meistaramánuði
Október er mánuður meistaranna. Markmiðin þátttakenda eru af öllum toga.

Ætlar að njóta augnabliksins
Sylvía Ósk Rodriguez hefur sett sér þrjú markmið í Meistaramánuði. Eitt markmiðanna er nokkurs konar framhald á markmiði sem hún setti sér í Meistaramánuði í fyrra en þá ákvað hún að borða engan sykur í mánuðinum. Hún hefur lést um þrjátíu kíló síðan.

5 bestu snjallsímaforritin fyrir skipulagðara líf
Heilsuvísir er búinn að taka saman 5 forrit sem þú getur hlaðið niður í símann þinn og hjálpa þér við að ná betri árangri í þeim verkefnum og markmiðum sem að þú ætlar að setja þér.

Allir geta orðið meistarar
"Meistaramánuður er í raun lífstílsátak þar sem fólk á öllum aldri skorar sjálft sig á hólm og reynir að bæta sig á einhvern hátt. Allir sem eru tilbúnir að setja sér einhver markmið og fylgja þeim eftir í einn mánuð geta tekið þátt,“ segir Þorsteinn Kári Jónsson, einn stofnenda Meistaramánuðar.

Allir með í Meistaramánuði
Birta Björnsdóttir hefur að undanförnu sankað að sér hvetjandi og skemmtilegu efni sem tengist meistaramánuðinum á einhvern hátt.

Skráning í Meistaramánuð hafin!
Heilsuvísir hvetur sem flesta til að taka þátt.

Munaður í Meistaramánuði
Nú er Meistaramánuður og um að gera að setja sér háleit markmið, og auðvitað á það einnig við um ástarlífið.