Arnór á skotskónum í sigri Helsingborgar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. september 2014 19:27 Arnór skoraði þriðja mark Helsingborgar. Heimasíða Helsingborgar
Sex leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.Arnór Smárason skoraði þriðja og síðasta mark Helsingborgar sem vann 3-1 sigur á Brommapojkarna á heimavelli.David Accam kom Helsingborg yfir strax á 4. mínútu, en Jesper Karlström jafnaði fjórum mínútum síðar. Þannig var staðan fram á 47. mínútu þegar Accam kom heimamönnum yfir á nýjan leik. Arnór gulltryggði svo sigurinn með marki á 78. mínútu. Skagamaðurinn var tekinn af velli á lokamínútunni.Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn á miðjunni hjá Helsingborg, en hann skrifaði undir nýjan samning við félagið fyrr í dag. Kristinn Jónsson var ekki í leikmannahópi Brommapojkarna.Kristinn Steindórsson lék allan leikinn fyrir Halmstads sem tapaði fyrir Malmö á heimavelli með einu marki gegn engu. Guðjón Baldvinsson kom inn á sem varamaður hjá Halmstads og lék síðasta hálftímann.Halldór Orri Björnsson sat allan tímann á varamannabekknum þegar Falkenbergs tapaði 1-0 á útivelli fyrir Djurgården.Hjálmar Jónsson kom heldur ekkert við sögu hjá IFK Gautaborg sem vann Örebro í miklum markaleik, 3-4. Mjällby bar sigurorð af AIK á heimavelli með einu marki gegn engu. Guðmann Þórisson var ekki í leikmannahópi Mjällby. Þá vann Elfsborg 1-0 sigur á Gefle á heimavelli. Skúli Jón Friðgeirsson lék allan leikinn í vörn Gefle.
Fótbolti á Norðurlöndum Tengdar fréttir Guðlaugur Victor skrifaði undir langtíma samning við Helsingborg Knattspyrnumaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson hefur skrifað undir fjögurra ára samning við sænska úrvalsdeildarliðið Helsingborg IF. 24. september 2014 17:05 Mest lesið Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Enski boltinn „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Körfubolti Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Íslenski boltinn Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Fótbolti „Sagt að mér gæti blætt út“ Sport Frank Mill er látinn Fótbolti Máluðu dvergana sjö í kringum fræga veggmynd af Lamine Yamal Fótbolti Fleiri fréttir Gervigreindin fór illa með mótherja Víkinga „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Frank Mill er látinn Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Natasha með slitið krossband Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Máluðu dvergana sjö í kringum fræga veggmynd af Lamine Yamal Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Mark Kolbeins svo gott sem gulltryggði sigurinn „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Orri Steinn fær portúgalska samkeppni Breiðablik og Víkingur vita hverjum þau mæta næst Rashford með sitt fyrsta mark fyrir Barcelona Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Sjáðu tvennu Sigurðar og snögg svör Víkinga Barist um undirskrift Nunez Tómas Bent seldur til Skotlands Ronaldo vill gera Greenwood aftur að liðsfélaga „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Sjá meira
Guðlaugur Victor skrifaði undir langtíma samning við Helsingborg Knattspyrnumaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson hefur skrifað undir fjögurra ára samning við sænska úrvalsdeildarliðið Helsingborg IF. 24. september 2014 17:05