Herra Stóra skot leggur skóna á hilluna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. september 2014 13:30 Billups og Gary Payton eigast við í úrslitaeinvíginu 2004. Vísir/AFP
Chauncey Billups hefur lagt skóna á hilluna, eftir 17 ára feril í NBA-deildinni. Hann tilkynnti um þessa ákvörðun sína í samtali við Yahoo Sports. Billups, sem verður 38 ára síðar í mánuðinum, hefur átt við meiðsli að stríða undanfarin ár, en hann hefur aðeins komið við sögu í 61 leikjum á síðustu þremur árum. Billups, sem er fæddur og uppalinn í Colorado, var valinn númer þrjú í nýliðavalinu 1997 af Boston Celtics. Eftir þvæling á milli liða fyrstu árin í NBA gekk Billups til liðs við Detroit Pistons 2002 þar sem hann átti sín bestu ár. Hann var valinn besti leikmaður úrslitaeinvígisins þegar Detroit varð NBA-meistari 2004 eftir sigur á LA Lakers. Billups þótti sérstaklega sterkur á lokakafla leikja og var ófeiminn að taka skot á mikilvægum augnablikum, sem varð til þess að hann hlaut viðurnefnið Mr. Big Shot.Billups tekur við verðlaununum fyrir að vera besti leikmaður úrslitaeinvígisins 2004 úr hendi Davids Stern.Vísir/GettyDetroit komst aftur í úrslit árið eftir, þar sem liðið tapaði fyrir San Antonio Spurs í oddaleik. Detroit komst í úrslit Austurdeildarinnar öll sex árin sem Billups var í herbúðum liðsins. Honum var svo skipt til Denver Nuggets í nóvember 2008 fyrir Allen Iverson. Billups lék í þrjú ár með Denver. Þaðan fór hann til New York Knicks og LA Clippers, áður en hann lauk ferlinum hjá Detroit. Billups skoraði 15,2 stig og gaf 5,4 stoðsendingar að meðaltali í leik á ferlinum. Hann tók fimm sinnum þátt í Stjörnuleik NBA. Þá varð Billups heimsmeistari með Bandaríkjunum 2010.
NBA Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Fótbolti Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Fótbolti Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Íslenski boltinn Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Fleiri fréttir Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Sjá meira