Burstaðu tennurnar vel og vandlega
Flestir eru meðvitaðir um mikilvægi þess að bursta tennurnar og gera það samviskusamlega kvölds og morgna. Það er þó mikilvægt að bursta tennurnar rétt til þess að þær séu eins hreinar og mögulegt er. Best er að bursta allar hliðar tannanna í að minnsta kosti tvær mínútur. Gætið þess að bursta ekki of fast. Best er að bursta tennurnar 2-3 á dag.
Tannþráðurinn er lykilatriði
Það er ekki bara nóg að bursta tennurnar heldur er mjög mikilvægt fyrir heilbrigði tanna að nota tannþráð reglulega. Tannþráðurinn getur fjarlægt óhreinindi og matarleifar þaðan sem tannburstinn nær ekki til. Tannþráðurinn hjálpar líka til við að koma í veg fyrir að tannsteinn myndist á yfirborði tannanna. Best er að nota tannþráð daglega.
Mataræði skiptir máli
Mataræði hefur líka áhrif á heilbrigði og útlit tanna. Sykur er sérstaklega vondur fyrir tennurnar og mikil sykurneysla getur valdið skemmdum á tönnum. Forðastu sykraðan mat, gosdrykki og drykki sem eru með hátt sýrumagn til þess að viðhalda heilbrigði tannanna. Það er gott að skola munninn með volgu vatni eftir að hafa drukkið eða borðað eitthvað með sterkum lit til þess að koma í veg fyrir að tennurnar litist.
Það er ekki gott að gnísta tönnum
Streita og skakkt bit ásamt öðrum þáttum geta orðið til þess að við gnístum tönnum í svefni án þess að vita af því. Eymsli eða verkir í tönnum eða kjálka geta verið merki þess að þú gnístir tönnum. Ef það er tilfellið hjá þér er mikilvægt að leita til tannlæknis og fá lausn við því vandamáli. Tennurnar eyðast upp með tímanum og það getur orðið verulegt vandamál.
í þessu myndbandi er farið yfir það hvernig er best að bursta tennurnar til þess að halda þeim hreinum og heilbrigðum