Lét skoða bílinn í Frumherja og vann Skoda Finnur Thorlacius skrifar 2. september 2014 13:50 Orri Hlöðversson forstjóri Frumherja afhendir Agnari Þór Sveinssyni Skoda bílinn.
Nýlega fór fram afhending á vænum vinningi sem dreginn var út í sumar í happaleik Frumherja. Vinningurinn sem um ræðir er Skoda Citigo bifreið að verðmæti tæpar 2 milljónir króna. Fá dæmi eru um það að fyrirtæki á Íslandi gefi svo stóran vinning til viðskiptavina sinna. Þeir sem viðskipti áttu við bifreiðaskoðunarsvið Frumherja fyrstu sex mánuði ársins gátu einir skráð sig til leiks. Þátttaka var mjög góð og alls skráðu um 16.000 viðskiptavinir sig í leikinn á tímabilinu. Sá heppni að þessu sinni heitir Agnar Þór Sveinsson, búsettur á Siglufirði, en hann kom með bíl sinn til skoðunar í heimabæ sínum síðastliðið vor. Það borgaði sig svo sannarlega fyrir hann að skipta við Frumherja að þessu sinni því lukkudísirnar ákváðu í kjölfarið að hann myndi hljóta hinn eftirsótta vinning. Agnar var á ferð hér í höfðuborginni á dögunum og gafst þá tækifæri til að afhenda honum vinninginn með viðhöfn. Á meðfylgjandi mynd má sjá Agnar taka við bifreiðinni úr höndum Orra Hlöðverssonar, framkvæmdastjóra Frumherja. Frumherji óskar Agnari til hamingju með vinninginn og þakkar um leið fjölmörgum viðskiptavinum fyrir að taka þátt í happaleiknum.
Mest lesið Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Erlent Losnar fyrr og fær ekki að koma aftur í 30 ár Innlent Kallar eftir náðun Kouranis og brottvísun strax á morgun Innlent Tvíburarnir fengu ár í viðbót Innlent „Ég mun ekki sjá eftir honum“ Innlent Ingvar aftur kominn í leyfi frá þingstörfum Innlent Kallaði eftir aftöku heimilislauss fólks: „Drepa þau bara“ Erlent NATO og Rússland „augljóslega“ í stríði Erlent Tinder-svindlarinn handtekinn í Georgíu Erlent Conor McGregor dregur forsetaframboðið til baka Erlent