Enski boltinn

Blikar mæta Stjörnunni í undanúrslitum Borgunarbikarsins

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Blikar fagna bikarnum í fyrra.
Blikar fagna bikarnum í fyrra. mynd/vísir
Bikarmeistarar Breiðabliks og Íslandsmeistarar Stjörnunnar mætast í undanúrsiltum Borgunarbikars kvenna í fótbolta en dregið var í höfuðstöðvum KSÍ í dag.

Í hinni viðureigninni eigast við Fylkir og Selfoss en Fylkisliðið er nýliði í Pepsi-deildinni. Leikirnir fara fram 25. og 26. júlí.

Hvorki Fylkir né Selfoss hafa áður leikið til úrslita þannig ljóst er að brotið verður blað í sögu annars félagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×