Það er hægt að fá hann í allskyns bragðtegundum, eins og beikoni, með ýmsum rifflum og rákum, sjálflýsandi, með glimmeri og í ýmsum stærðum.
Það breytir því þó ekki að fólk talar enn um að hindrunin við að nota smokkinn sé ekki útlit heldur tilfinningin, eða tilfinningarleysið, við samfarir. Sumum finnst líka erfitt að biðja bólfélagann um að nota smokk og að muna eftir honum.
Sumir hafa farið frumlegar leiðir í því að auka aðgengi og fræðslu að smokknum.
En hvað er til ráða þegar við vitum smokkurinn er lykilinn að framtíðinni en fólk notar hann ekki?

Þá er einnig til origami smokkur sem hefur fengið töluverða athygli en ég veit ekki til þess að fáist á Íslandi.
Bill og Melinda Gates blésu til hönnunarsamkeppni um nýja tegund af smokknum nýverið.
Ellefu hugmyndir fengu 100 þúsund dollara til að þróa áfram sínar útgáfur af smokknum og má þar nefna smokk úr hydrogeli sem er víst eins og „húð“ og smokk sem maður rúllar upp á typpið beint úr umbúðunum.
Þær hugmyndir sem verða valdar til að þróa enn lengra fá eina milljón dollara hver.
Nú er það bara stóra spurningin hvort ný útfærsla sé nóg til að fá fólk til að fara nota smokkinn?