Kolbrún Pálína töfraði fram ferska og ljúffenga sumarrétti. Hún bauð okkur meðal annars upp á ljúffenga kókos- og límónusúpu sem er innblásin frá Balí.
Í eftirrétt bauð hún okkur upp á gómsætan og léttan ananas desert með myntu og kókos. Við skáluðum svo í ferskan sumarkokteil sem Kolbrún bjó til úr vatnsmelónu og límónu.
Fullkomnir sumarréttir sem bæta og kæta.
Sumarleg límónu og kókossúpa fyri 2-4
1/2 laukur
5 cm engifer
1/2 grænn chili
2 hvítlauksrif
2 stilkar sítrónugras (lemmon grass)
100 gr pack choi (Kínverskt hvítkàl)
1/4 rauð paprika
1 msk kókosolía
200 ml vatn
1 msk agave síróp
1 grænmetisteningur
400 ml kókosmjólk
175 gr baunaspírur
Safi úr hàlfti sítrónu
Safi úr hàlfri límónu
Lúka af fersku kóríander
Salt og pipar eftir smekk.
Tígrisrækjur (Má nota annan fisk eða kjúkling)
Aðferð:
Saxið laukinn. Fræhreinsið chili-inn og saxið. Afhýðið engiferinn og saxið. Fjarlægið ystu blöðin af sítrónugrasinu og saxið gróft. Blandið þessum hràefnum saman og skellið í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota. Hitið kókosolíuna og setjið maukið í pottinn. Hitið í ca 5 min.
Bætið kókosmjólkinni, agave sírópinu, vatninu og grænmetisteningnum í pottinn.
Skerið paprikuna og hvítkálið langsöm og bæti því sömuleiðis ásamt baunaspírunum og tígrisrækjunum í pottinn.
Hitið varlega í 10 mín eða þar til grænmetið er orðið meyrt.
Bætið sítrónu, límónusafanum og kóríander laufunum við og kryddið eftir smekk!
Vatnsmelónu-límónaði
Ca 5 dl vatnsmelóna
2 límónur
10 blöð af myntu
Aðferð:
Setjið allt í blandara og blandið vel saman.
Brakandi ferskur ananas eftirréttur
Ananas
Hrásykur
Mynta
Lífræn kókosjógúrt
Kókosflögur
Aðferð:
Skerið ananasinn og vel af myntu niður, blandið vel saman ásamt hrásykri eftir smekk.
Setjið blönduna í skál eða glas, hellið jógúrtinni yfir og skreytið kókosflögum, myntu eða öðru góðgæti sem leynist í ísskápnum.
Höfðingjar heim að sækja er á dagskrá Stöðvar 2 á mánudagskvöldum.