Tíska og hönnun

Dóttir Hasselhoffs gengur tískupallana

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hayley Hasselhoff, 21 árs dóttir Baywatch-hönksins Davids Hasselhoffs, gekk tískupallana á tískuvikunni í París um helgina þar sem eingöngu voru sýnd föt fyrir konur í yfirstærð.

David á Hayley með fyrrverandi eiginkonu sinni, Pamelu Bach, en Hayley hefur gert það gott í tískubransanum síðustu misseri og er nú að hanna sína eigin fatalínu fyrir konur í yfirstærð.

Hayley er einnig þekkt fyrir hlutverk sitt sem Amber í sjónvarpsþáttunum Huge og kom auðvitað líka við sögu í raunveruleikaþættinum The Hasselhoffs sem fjallaði um fjölskyldu hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.