Hefur tvisvar skilað Íslandsmeistaratitli á fyrsta ári með Njarðvík Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. apríl 2014 20:00 Friðrik Ingi Rúnarsson með Íslandsbikarinn eftir að titilinn vannst á Seltjarnarnesi vorið 1998. Vísir/ÞÖK
Friðrik Ingi Rúnarsson skrifaði um helgina undir fimm ára samning um að þjálfa meistaraflokka Njarðvíkur í körfubolta. Þetta koma fyrst fram á karfan.is en var síðan staðfest á heimasíðu Njarðvíkur. Þetta er í þriðja sinn sem Friðrik Ingi tekur við meistaraflokki karla hjá Njarðvík en hann þjálfaði liðið í tvö tímabil frá 1990-1992 og í þrjú tímabil frá 1998-2000. „Ég tek við virkilega góðu búi frá Einari Árna og verkefnin framundan eru afar spennandi og krefjandi en jafnframt eru spennandi tímar í kvennastarfinu þar sem iðkendafjöldi hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum.“ er haft eftir Friðriki við undirritunina í frétt á heimasíðu Njarðvíkur en það má einnig finna viðtal við hann á karfan.is. Friðrik Ingi byrjaði frábærlega með Njarðvíkurliðið í hin tvö skiptin sem hann tók við stjórninni í Ljónagryfjunni. Hann hefur nefnilega tvisvar skilað Íslandsmeistaratitli á fyrsta ári með Njarðvík, fyrst aðeins 22 ára gamall vorið 1991 og svo 29 ára gamall vorið 1998. Í bæði skiptin hafði Njarðvíkurliðið dottið út úr undanúrslitunum árið áður en sama var upp á teningnum í ár. Njarðvík tapaði í oddaleik á móti Keflavík í fjögurra liða úrslitum 1991 og en Grindvíkingar (þá undir stjórn Friðriks Inga) sópuðu Njarðvíkurliðinu út í fjögurra liða úrslitum 1997.Allt er þegar þrennt er?Friðrik tekur við karlaliði Njarðvíkur 1990 Tímabilið fyrir komu Friðriks Inga: Undanúrslit 1990 Fyrsta tímabil Friðriks Inga: Íslandsmeistarar 1991Friðrik tekur við karlaliði Njarðvíkur 1997 Tímabilið fyrir komu Friðriks Inga: Undanúrslit 1997 Fyrsta tímabil Friðriks Inga: Íslandsmeistarar 1998Friðrik tekur við karlaliði Njarðvíkur 2014 Tímabilið fyrir komu Friðriks Inga: Undanúrslit 2014 Fyrsta tímabil Friðriks Inga: ???
Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald Íslenski boltinn Fékk hræðilegar fréttir nokkrum dögum fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira