Durant skoraði 43 stig og Lakers tapaði 7. heimaleiknum í röð 14. febrúar 2014 09:01
Kevin Durant átti enn einn stórleikinn í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar Oklahoma vann Lakers, 107-103. Durant skoraði 43 stig í leiknum, þar af 19 í fjórða leikhluta, sem gestirnir unnu með 14 stiga mun og átu upp forskot Lakers-manna. Durant bætti svo við 12 fráköstum og 7 stoðsendingum en honum halda engin bönd þessa dagana. WesleyJohnson og Chris Kaman skoruðu báðir 19 stig fyrir Lakers. Þetta var sjöunda tap Lakers í röð á heimavelli sem er met í sögu félagsins en þetta mikla stórveldi er í næstneðsta sæti vesturdeildarinnar með 18 sigra og 35 töp. Einn annar leikur fór fram í nótt en deildin fer nú í hlé til 19. febrúar vegna stjörnuleiksins. Chicago Bulls þá vann öruggan heimasigur á Brooklyn Nets, 92-76.JoakimNoah bauð upp á myndarlega tvennu fyrir Bulls með 14 stigum og 13 fráköstum en hann var nálægt sinni annarri þrennu í röð. Hann gaf 7 stoðsendingar og vantaði aðeins þrjá slíkar upp á þrennuna. Bulls heldur áfram að gera góða hluti þrátt fyrir að því vanti sinn besta leikmann, DerrickRose, en þetta gífurlega vel þjálfaða lð er í fjórða sæti austurdeildarinnar með 27 sigra og 25 töp. Í spilaranum hér að ofan má sjá brot úr leik Oklahoma og Lakers í nótt þar sem Kevin Durant raðar niður körfunum.Úrslit næturinnar:Los Angeles Lakers - Oklahoma City Thunder 103-107Chicago Bulls - Brooklyn Nets 92-76Heildarstaðan.
NBA Mest lesið Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM Handbolti Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Fótbolti Kærður fyrir ofbeldi gegn syni sínum Sport Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Fótbolti Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Fótbolti Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Fótbolti Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM Handbolti Martin: Ætlaði alltaf að verða ungur faðir eins og pabbi sinn Körfubolti „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Fótbolti Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Handbolti Fleiri fréttir Martin: Ætlaði alltaf að verða ungur faðir eins og pabbi sinn Botnliðið fær landsliðsmann Aþena lagði Grindavík Haukar voru betri í dag Uppgjörið: Haukar - Keflavík 100-83 | Þægilegur Haukasigur í stórleiknum „Mikilvægasti sigur í sögu íslensks körfubolta“ Aðalkeppinautar Íslands um sæti á EM skoruðu ótrúlega körfu Umboðsmaðurinn sérstaki sem kom með fyrstu Kananna til landsins Tvær tvöfaldar þrennur í sigrum Tindastóls og Þórs Akureyrar „Þessi deild er bara þannig að það er ekkert gefins“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 77-67 | Grænar unnið fimm í röð Albert sá sögulegan sigur strákana okkar og Martin stríddi Ítölum Vaknaði með harðsperrur: „Þetta var bara stórkostlegt“ Stærstu sigrar íslenska körfuboltalandsliðsins í gegnum tíðina Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Kristinn: Við vorum geggjaðir Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Lögmál leiksins: „Leifur, ertu með glósur?“ Dwayne Lautier á leið í aðgerð og verður frá í 6-8 vikur Sneri aftur í landsliðið í fyrsta sinn eftir að hafa misst nýrað Kallaði dómarann tík og rúmlega það LaMelo Ball í 50-stiga klúbbinn Björgvin aftur í Breiðholtið Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Hefur Ben Simmons náð botninum? Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Aðalþjálfari Ítalíu var með hausverk og horfði ekki á seinni hálfleik Fer á mjög dimman stað þegar lið hans tapar Sjá meira