NBA í nótt: Brooklyn stöðvaði Golden State Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. janúar 2014 09:00 Curry og félagar töpuðu í nótt. Mynd/AP
Brooklyn Nets vann sinn fjórða leik í röð þegar að liðið varð fyrst til að leggja Golden State Warriors að velli í langan tíma í NBA-deildinni í nótt.Brooklyn vann á heimavelli, 102-98, en Golden State hafði fram að því unnið tíu leiki í röð. Það var lengsta sigurganga liðsins frá 1975 en liðið var bara einum sigri frá félagsmetinu.Kevin Garnett fór mikinn í lokaleikhlutanum og skoraði þá ellefu af þrettán stigum hans í leiknum. Hann fór svo langt með að gera út um leikinn með því að komast inn í sendingu Stephen Curry á lokamínútu leiksins. Brooklyn hefur unnið alla leiki sína á árinu og liðið hefur ekki áður unnið fjóra leiki í röð á tímabilinu til þessa. Curry skoraði 34 stig fyrir Golden State í leiknum.Atlanta vann Indiana, 97-87, en síðarnefnda liðið heldur þrátt fyrir tapinu efsta sæti Austurdeildarinnar. Kyle Korver skoraði sautján stig fyrir Atlanta og Pero Antic var með sextán. Indiana hefur ekki unnið í Atlanta síðan 2006 og hefur nú tapað tólf leikjum í röð þar í borg. Þetta var þó fjórði leikur Indiana á síðustu fimm dögum og þreytumerkin á liðinu augljós.Paul George skoraði 28 stig fyrir Indiana sem skoraði aðeins tólf stig í fyrsta leikhlutanum og 32 í fyrri hálfleik.San Anotonio er nú eitt í efsta sæti Vesturdeildarinnar eftir sigur á Dallas, 112-90, þar sem að Oklahoma City spilaði ekki í nótt. Tony Parker var með 25 stig í öruggum sigri San Antonio.Houston vann LA Lakers, 113-99, en síðarnefnda liðið hefur nú tapað þremur leikjum í röð og er í þriðja neðsta sæti vesturdeildarinnar.Úrslit næturinnar: San Antonio - Dallas 112-90 Toronto - Detroit 112-91 Atlanta - Indiana 97-87 Brooklyn - Golden State 102-98 New Orleans - Washington 96-102 Houston - LA Lakers 113-99 Minneosta - Phoenix 103-104 Portland - Orlando 110-94 LA Clippers - Boston 111-105
NBA Mest lesið Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Landsliðskona í Val Handbolti „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Fótbolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Fótbolti Fleiri fréttir „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Sjá meira