Lífið

Nornaseiður frá Andreu Maack

 Coven er nýjasti ilmurinn frá Andreu Maack, en hún hefur getið sér gott orð fyrir ilmvötn sín.
Coven er nýjasti ilmurinn frá Andreu Maack, en hún hefur getið sér gott orð fyrir ilmvötn sín. Fréttablaðið/Arnþór
„Þetta er eiginlega hálfgerður nornaseiður,“ segir Andrea Maack, myndlistarkona og ilmhönnuður, um nýjan ilm sinn, COVEN, sem hún er að setja á markað um þessar mundir.

Ilmurinn er sá sjöundi í röðinni hjá Andreu, en hún hefur ilmi sína til sölu um allan heim - frá Íslandi til Miðausturlanda.

Ilmvötn Andreu eru frábrugðin öðrum af því leytinu til að þau eru unnin út frá teikningum eftir hana sjálfa, en hún er myndlistarmaður að mennt.

Andrea býr og starfar um þessar mundir í Mílanó, þar sem höfuðstöðvar Andrea Maack Parfums eru starfræktar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.