Lífið

Ekki sönn ást með Tom Cruise

Leikkonan hefur núna hitt sína einu, sönnu ást.
Leikkonan hefur núna hitt sína einu, sönnu ást. nordicphotos/getty
Nicole Kidman, fyrrverandi eiginkona Toms Cruise, segist aldrei hafa verið almennilega ástfangin af leikaranum.

Hún segir að aðeins Brad Pitt og Angelina Jolie séu í aðstöðu til að skilja Hollywood-hjónaband þeirra.

„Svona tilvera er sérstök. Þið einbeitið ykkur mjög hvort að öðru og eruð inni í sápukúlu,“ sagði leikkonan við Vanity Fair. „Með fulla virðingu fyrir því sem ég átti með Tom þá hef ég núna hitt mína einu, sönnu ást,“ sagði hún og átti við sveitasöngvarann Keith Urban.

„Ég vissi ekki hvort ég myndi finna þessa ást. Mig langaði að finna hana en ekki á tímabili. Þá vildi ég ekki hoppa úr einu sambandi í annað.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.