Æskuminning að hausti Sara McMahon skrifar 1. október 2013 06:00 Það er komið haust. Trén fella lauf sín, grasið fölnar og það kólnar í veðri. Mér þykir þessi árstími einstaklega fallegur, jafnvel þótt gömul æskuminning sæki ætíð á mig á haustin. Minningin stendur mér ljóslifandi fyrir hugskotssjónum. Ætli ég hafi ekki verið um tíu ára gömul og foreldrar mínir höfðu keypt á mig úlpu frá fatamerkinu Oilily í Dublin. Úlpan var hin fallegasta; rauðgul að lit, eins og blóðappelsína, og með fjólubláum rennilás. En sá hængur var á gjöf foreldra minna að ég mátti ekki klæðast henni nema við hátíðleg tækifæri. Úlpan var nefnilega hugsuð sem spariflík. Eitt kvöld, að kvöldmat loknum, fékk ég leyfi til að fara út að leika mér. Ég laumaðist til að klæða mig í Oilily-úlpuna og var við að hendast út um dyrnar þegar móðir mín kippir í hnakkadrambið á mér og skipar mér í gömlu úlpuna. Mér þótti þetta ömurlegt enda þráði ég ekkert heitar en að monta mig af nýju úlpunni. En móðir mín sat föst við sinn keip og eftir töluvert nöldur af minni hálfu lét ég loks undan. Ég arkaði fúl á móti út á leikvöll í gömlu, ljótu (að mér fannst) úlpunni og hitti þar vini mína. Stuttu eftir að leikar hófust hafði ég gleymt fýlunni og tekið gleði mína á ný. Í hamaganginum miðjum tók ég upp á því að príla upp í tré. Hátt, hátt upp og svo aftur niður. Á niðurleiðinni skrikaði mér þó fótur og ég féll á stéttina fyrir neðan mig. Lukkulega slapp ég að mestu með skrekkinn – nema ég hafði rifið gat á úlpuna mína og að auki lent ofan í svolitlum olíupolli. Ég man enn þann dag í dag hversu fegin ég var að hafa ekki farið út í spariflíkinni – það hefði verið hræðilegt að eyðileggja hana svona stuttu eftir montið. En það var einmitt á þessari stundu sem ég áttaði mig á því að móðir mín hafði haft rétt fyrir sér. Og það rifjast upp fyrir mér á hverju hausti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sara McMahon Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun