Lífið

Nýtur mikillar velgengni

Selena Gomez er gríðarlega vinsæl um þessar mundir.
Selena Gomez er gríðarlega vinsæl um þessar mundir. getty/nordcphotos
Plata söngkonunnar Selenu Gomez, Come and get it, vermir toppsæti bandaríska Billboard-plötulistans.

Rapparinn Jay Z var efstur á listanum með plötunni Magna Carta Holy Grail en verður nú að lúta í lægra haldi fyrir hinni ungu Gomez sem seldi 97.000 eintök í fyrstu söluvikunni.

Gomez, sem varð 21 árs á dögunum, er sú næstyngsta sem kemst á topp Billboard-listans en Taylor Swift komst á toppinn árið 2010 með plötu sinni Speak Now, þá aðeins tvítug.

Hlutirnir virðast ganga gríðarlega vel hjá Selenu Gomez þessa dagana. Hún er þó ekki enn viss um samband sitt og Justins Bieber en þau eru ýmist saman eða í sundur um þessar mundir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.