Tónlist

Sigurtextinn fluttur

Textinn við lagið Nakin nótt verður frumfluttur í kvöld.
Textinn við lagið Nakin nótt verður frumfluttur í kvöld. Fréttablaðið/Vilhelm
Hljómsveitin Mosi frændi ætlar að frumflytja sigurtextann sem einn af hlustendum Popplands á Rás 2 samdi við lag hennar Nakin nótt, á tónleikum á Gamla Gauknum í kvöld. Þetta verða fyrstu opinberu tónleikar sveitarinnar í fjögur ár.

Mosi frændi var stofnuð af sex nemendum í Menntaskólanum í Hamrahlíð árið 1985. Þekktasta lag hennar er Katla kalda sem kom út 1988. Það samdi hún eftir að Þorsteinn J. Vilhjálmsson, sem þá var útvarpsmaður á Bylgjunnar, fékk hlustendur til að semja með sér texta sem átti að sameina allt það versta í íslenskri textagerð. Mosi frændi setti sig í samband við Þorstein og bauðst til að semja lag við textann.

Í ár var ákveðið að endurtaka leikinn frá því í gamla daga og fá hlustendur Popplands til að senda inn sína útgáfu af texta við prufuupptöku af lagi Mosa frænda. Heiða Eiríksdóttir úr hljómsveitinni Hellvar lánaði sveitinni rödd sína til að laglínan kæmist til skila. Á meðal þeirra sem voru í dómnefnd til að velja besta textann voru Þorsteinn J., Ólafur Páll Gunnarsson og Páll Óskar Hjálmtýsson.

Auk Mosa frænda spila á tónleikunum í kvöld hljómsveitirnar Fræbblarnir, Hellvar, Saktmóðigur og Skelkur í bringu. Tónleikarnir hefjast klukkan 22.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.