Tónlist

Tónleikaferð um heiminn

í tónleikaferð Sir Paul McCartney er hvergi nærri hættur í bransanum.
í tónleikaferð Sir Paul McCartney er hvergi nærri hættur í bransanum.
Bítillinn fyrrverandi Paul McCartney hefur tilkynnt um tónleikaferð um heiminn sem ber yfirskriftina Out There!. Fyrstu tónleikarnir verða í Varsjá í Póllandi 22. júní en þar hefur hann aldrei spilað áður.

McCartney hefur einnig tilkynnt um tónleika í Vín í Austurríki 27. júní. Hann spilar einnig á Bonnaroo-tónlistarhátíðinni sem verður haldin í Bandaríkjunum 13. til 16. júní. Bítillinn fyrrverandi virðist því hvergi nærri ætla að slaka á þrátt fyrir að verða 71 árs á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.