Tónlist

Vill gera Vevo að hinu nýja MTV

Stærstur hluti áhorfenda Vevo-vefsíðunnar er undir 34 ára og því líklegt að Rihanna verði á dagskránni á nýju sjónvarpsstöðinni.
Stærstur hluti áhorfenda Vevo-vefsíðunnar er undir 34 ára og því líklegt að Rihanna verði á dagskránni á nýju sjónvarpsstöðinni.
Tónlistarmyndbandasíðan Vevo, sem var sett á fót af tónlistarútgáfurisunum Sony og Universal árið 2009, hleypti á þriðjudag í loftið nýrri stafrænni sjónvarpsstöð sem sýnir myndbönd og aðra tónlistartengda dagskrá allan sólarhringinn. Hægt verður að sjá stöðina með tækjum sem tengjast við internetsjónvarpstæki, eins og Xbox, og einnig í snjallsímum og spjaldtölvum.

Vevo-stöðin verður fyrst um sinn einungis fáanleg í Bandaríkjunum og Kanada en stefnt er að því að hefja útsendingar ætlaðar Evrópu- og Suður-Ameríkumarkaði síðar á þessu ári.

Rio Caraeff, forstjóri Vevo, segir í viðtali við Financial Times að hefðbundin sjónvarpsstöð með tónlistarefni geti enn dregið að sér yngri áhorfendur, eða „stafrænu kynslóðina“ eins og hann orðar það. Spurður hvort Vevo verði hið nýja MTV, sem fór í loftið fyrir 31 ári, segir Caraeff: „Ég vona það og stefni að því en eðli málsins samkvæmt verða stöðvarnar ólíkar. Við reynum að framkalla vissa nostalgíu en 70 prósent áhorfenda okkar eru undir 34 ára aldri.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.