Tónlist

Lögsóttur vegna Beyoncé-leka

Útgáfurisinn Somy hefur lögsótt sænskan mann fyrir að dreifa plötu söngkonunnar Beyoncé á netinu áður en hún var gefin út opinberlega. Sony fer fram á rúmar 29 milljónir króna í skaðabætur. Frá þessu er greint á vefsíðu tónlistartímaritsins NME.

Lögfræðingar Somy halda því fram að hinn 47 ára gamli maður frá Gautaborg hafi "lekið" plötunni 4 með Beyoncé á netið þann 8. júní árið 2011, rúmum tveimur vikum áður en platan var gefin út opinberlega. Nafn Svíans hefur ekki verið gert opinbert en talið er líklegt að hann starfi innan tónlistargeirans.

Sony heldur því fram að athafnir mannsins hafi haft í för með sér margvíslegar neikvæðar afleiðingar í för með sér, þar á meðal fyrir sölutekjur af plötunni og markaðsherferð fyrir kynningu hennar. Sony heldur því einnig fram að lekinn hafi skaðað samband fyrirtækisins við söngkonuna og að orðspor Beyoncé hafi beðið hnekki fyrir vikið.

Fyrr á þessu ári voru tveir enskir menn dæmdir í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi og hundrað klukkustunda samfélagsvinnu fyrir að niðurhala ólöglega um 7.000 skjölum með tónlist frá Sony, meðal annarra plötum með Michael Jackson, Elvis Presley og téðri Beyoncé. Í spilaranum hér fyrir ofan má sjá myndbandið við lagið Love On Top af umræddri plötu, 4.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.