Tíska og hönnun

Góð tónlist og slæm tíska

Stúlkurnar í Little Mix voru vægast sagt skrautlega til fara.
Stúlkurnar í Little Mix voru vægast sagt skrautlega til fara.
Bresku tónlistarverðlaunin voru veitt í 33. sinn í O2-höllinni í London á fimmtudag. Grínistinn James Corden var kynnir kvöldsins og á meðal þeirra hljómlistarmanna er komu fram voru Muse, Justin Timberlake og One Direction. Ben Howards og Emeli Sandé voru sigurvegarar kvöldsins og fékk hvort um sig tvenn verðlaun. Mumford & Sons þótti besta breska hljómsveitin, Adele átti besta lag ársins, Frank Ocean þótti besti alþjóðlegi söngvarinn, Lana Del Rey besta alþjóðlega söngkonan og The Black Keys besta alþjóðlega hljómsveitin. Tónlistin var þó ekki ein í sviðsljósinu í gær því mikið var spáð í fatnað tónlistarfólksins, sem þótti óvenju smekklaust í ár.
Glitraði Paloma Faith mætti í kjól alsettum glitrandi steinum.


Ólíkar Karis Anderson, Courtney Rumbold og Alex Buggs skipa sveitina Stooshe.


Satín frá toppi til táar Söngvarinn vinsæli Ed Sheeran mætti í satínjakkafötum.


Litrík leikkona Leikkonan Jamie Winstone klæddist kjól sem líktist glymskratta.


Rauðklædd Breska leikkonan Gemma Arterton glitraði í pallíettukjól.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.