Tíska og hönnun

Áslaug ein sú áhrifamesta í NY

Sara McMahon skrifar
Áslaug Magnúsdóttir, forstjóri Moda Operandi, er talin einn af áhrifamestu einstaklingum tískuiðnaðarins í New York. mynd/Robert Caplin
Áslaug Magnúsdóttir, forstjóri Moda Operandi, er talin einn af áhrifamestu einstaklingum tískuiðnaðarins í New York. mynd/Robert Caplin
Áslaug Magnúsdóttir, eigandi Moda Operandi, er á lista Fashionista.com yfir valdamestu einstaklingana í tískuiðnaðinum í New York. Fimmtíu manns eru á listanum, þar á meðal Anna Wintour, ritstjóri bandaríska Vogue.

Á listanum eru alls fimmtíu einstaklingar sem starfa innan tískuiðnaðarins, þar á meðal fatahönnuðir, fyrirsætur, stílistar og forstjórar. Áslaug er í flokki forstjóra, en alls voru sex einstaklingar nefndir í þeim flokki. Fashionista.com taldi Andrew Rosen, forstjóra Theory, fjárfestinn Shana Fisher, Robert Duffy, forstjóra Marc Jacobs, James Gardner, forstjóra Createthe Group og loks Mark Lee, forstjóra verslunarinnar Barneys New York, til áhrifamestu forstjóra og fjárfesta New York.

Áslaug er ekki eini starfsmaður Moda Operandi sem komst á lista Fashionista.com því Taylor Tomasi Hill, listrænn stjórnandi Moda Operandi, er nefnd í flokki áhrifamestu innkaupastjóra og listrænna stjórnenda New York. Tomasi Hill er einnig tíður gestur á erlendum götutískubloggum og sótti einnig Ísland heim í tengslum við RFF árið 2012.

Aðrir sem komust á listann yfir valdamestu einstaklingana eru Anna Wintour, bloggarinn Bryan Boy og stílistarnir Grace Coddington og Carine Roitfeld.



RFF





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.