Móðir Kona Meyja flutt í Smáralind 8. febrúar 2013 15:00 Flíkurnar frá Matrem eru hannaður með það í huga að hægt sé að nota þær áfram eftir meðgöngu og brjóstagjöf.
Verslunin sérhæfir sig í fatnaði og vörum fyrir verðandi og nýbakaðar mæður. Þar er mikið úrval af alls kyns nauðsynjavörum fyrir meðgönguna og brjóstagjöfina. Þá er Móðir Kona Meyja mjög framarlega í sölu á taubleium og býður upp á persónulega ráðgjöf í þeim efnum. Í versluninni er meðal annars boðið upp á meðgöngu- og brjóstagjafafatnað frá fatahönnuðinum Sigrúnu Baldursdóttur, sem hannar undir merkinu Matrem. "Sum sniðin henta fyrir bæði meðgöngu- og brjóstagjöf og því eru flíkur frá Matrem afar eigulegar,“ segir Sigrún. "Brjóstagjafafatnaðurinn auðveldar aðgengi að brjóstunum og eykur þægindi fyrir mjólkandi mæður. Flíkurnar eru þó hannaðar með það í huga að hægt sé að nota þær áfram sem hönnunarvöru eftir að meðgöngu- eða brjóstagjöf lýkur,“ útskýrir Sigrún en hún hefur fengið einkaleyfi á hönnunina. Meðgöngu- og brjóstagjafarfatnaður Matrem fæst meðal annars í Móður Konu Meyju.Meðal nýjunga frá Matrem eru bolir úr lífrænni bómull með GOTS-vottun en úrvalið í þeirri línu mun aukast jafnt og þétt í Móður Konu Meyju. Nánari upplýsingar um Matrem, sem áður hét Lykkjufall, er að finna á matremdesign.com. Úrvalið hjá Móður Konu Meyju er hægt að skoða á mkm.is. Þess má geta að í tilefni opnunarinnar í Smáralind verða allar vörur með 25 prósenta afslætti. Sigrún Baldursdóttir..
Mest lesið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Menning Stór brjóst eru stór Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Sjóðheit tískusýning í Hörpu Innsýn í heim fatahönnuða framtíðarinnar Týndi strax 120 þúsund króna sokkum Varð að vera flottastur í eigin teiti „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Gabbana stígur til hliðar hjá Dolce & Gabbana Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Kröfuharður og með öll smáatriði á lás Sjá meira