NBA í nótt: Phildelphia vann í Los Angeles Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. desember 2013 08:24
Philadelphia 76ers batt enda á þrettán leikja taphrinu á útivelli er liðið heimsótti Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta nótt. Alls fóru fimm leikir fram í nótt.Philadelphia vann, 111-104, og sá til þess að Lakers tapaði þar með sínum fimmta leik í röð. Kobe Bryant lék ekki með Lakers vegna meiðsla. Thaddeus Young skoraði 25 stig í leiknum, þar af sjö í fjórða leikhluta. Evan Turner bætti við 22 stigum. Nick Young var stigahæstur hjá Lakers með 26 stig þrátt fyrir að hafa aðeins nýtt sex af 21 skoti sínu utan af velli.Golden State vann Cleveland, 108-104. Stephen Curry tryggði sigurinn með körfu þegar rúmar þrettán sekúndur voru eftir en hann var hársbreidd frá þrefaldri tvennu í leiknum með 29 stig, ellefu stoðsendingar og níu fráköst. Kyrie Irving skoraði 27 stig fyrir Cleveland sem hefur nú tapað fimm leikjum í röð. Golden State hefur nú unnið fimm í röð en þetta var fyrsti útileikur liðsins af sjö á næstu þrettán dögum.Oklahoma City vann Houston, 117-86. Kevin Durant var með 33 stig, þrettán fráköst og fimm stoðsendingar fyrir Oklahoma City sem vann þar með sinn fimmta sigur í röð. Jeremy Lamb bætti við 22 stigum.Úrslit næturinnar: Cleveland - Golden State 104-108 Orlando - Atlanta 109-102 Oklahoma City - Houston 117-86 San Antonio - Sacramento 112-104 LA Lakers - Philadelphia 104-111
NBA Mest lesið Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Fótbolti Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Enski boltinn Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Enski boltinn Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Íslenski boltinn Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield Enski boltinn Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn Máluðu dvergana sjö í kringum fræga veggmynd af Lamine Yamal Fótbolti Fleiri fréttir „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn „Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“ Callum Lawson aftur til Valsmanna Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Skora á KKÍ að sniðganga Ísrael: „Íþróttahreyfingin ekki undanskilin ábyrgð“ Semple til Grindavíkur NBA stjarna sökuð um að stela tugum milljóna frá spilavítum Gamall Stjörnumaður kemur aftur til Íslands og semur við Álftanes Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik „Erum að einblína á það sem er að gerast á vellinum“ Í þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að hrella Caitlin Clark Bað hennar í íþróttahúsinu þar sem allt byrjaði Mario fer ekki á EM – fimm dottnir úr hópi Íslands Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni NBA reynslubolti handtekinn fyrir ávísunarfals LeBron hitti umboðsmann Jokic í Frakklandi Landsliðsmenn buðust til að ræða við Craig: „Var ekki að fara grátbiðja hann í annað sinn“ Kristófer sendir frá sér yfirlýsingu: „Ekki ætlun mín að valda usla“ Sjá meira