Oklahoma óstöðvandi Kristinn Páll Teitsson skrifar 22. desember 2013 11:00 Russell Westbrook Mynd/Gettyimages
Það voru tólf leikir á dagskrá í NBA deildinni í nótt. Kevin Durant, Russell Westbrook og félagar í Oklahoma eru á góðu skriði þessa dagana. Þrettán stiga sigur Oklahoma City Thunder á San Antonio Spurs í nótt var sá níundi í röð hjá liðinu og sautjándi sigur liðsins í síðustu átján leikjum. Westbrook átti góðan leik í liði Oklahoma með 31 stig og átta stoðsendingar. Dwight Howard átti stórleik með 35 stig og 19 fráköst í sigri Houston Rockets í Detroit. Rockets sem tapaði stórt gegn Indiana kvöldið áður vann öruggan sigur þrátt fyrir að vera án bakvarðanna James Harden og Jeremy Lin í leiknum. Fjarvera lykilleikmanna Lakers reyndist þeim ofviða í 19 stiga tapi gegn Golden State Warriors í Oakland. Kobe Bryant, Steve Nash, Steve Blake og Jordan Farmar eru allir á meiðslalistanum auk þess sem Pau Gasol gat ekki spilað í leiknum í gær. Damian Lillard átti enn einn stórleikinn í liði Portland Trailblazers í tæpum sigri á New Orleans Pelicans. Portland er áfram aðeins einum sigri á eftir Oklahoma í baráttunni um efsta sætið í Vesturdeildinni.Úrslit: New York Knicks 87-95 Memphis Grizzlies Boston Celtics 99-106 Washington Wizards Orlando Magic 100-105 Sacramento Kings Charlotte Bobcats 85-88 Utah Jazz Detroit Pistons 97-114 Houston Rockets Chicago Bulls 100-84 Cleveland Cavaliers Milwaukee Bucks 116-100 Philadelphia 76ers San Antonio Spurs 100-113 Oklahoma City Thunder Phoenix Suns 123-108 Dallas Mavericks Portland Trailblazers 110-107 New Orleans Pelicans Golden State Warriors 102-83 Los Angeles Lakers Los Angeles Clippers 112-91 Denver Nuggets
NBA Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Landsliðskona í Val Handbolti „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Fleiri fréttir „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Sjá meira