Kobe Bryant til Þýskalands í læknismeðferð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. október 2013 22:30 Kobe Bryant Mynd/AP
Körfuboltamaðurinn Kobe Bryant hjá Los Angeles Lakers leitar nú allra ráða til þess að ná sem fyrst fullum styrk eftir að hafa slitið hásin í apríl á síðasta tímabili. Það var mikil bjartsýni hjá kappanum fyrr í sumar en það hefur dregið aðeins úr henni upp á síðkastið. Nýjust fréttirnar af Bryant eru þó ekki af hásinarvandamálum leikmannsins. Bryant er nú á leiðinni í læknismeðferð til Þýskalands samkvæmt fréttum í bandarískum miðlum en hann er þó ekki að láta laga á sér hásinina að þessu sinni heldur að reyna að losna við bólgur úr hné. Bryant fór til tvisvar til Þýskalands árið 2011 þegar hann var að jafna sig eftir meiðsli á hægra hné og vinstri ökkla. Hann fann til á báðum stöðum en meðferðin í Þýskalandi gekk þá mjög vel. Kobe Bryant mun nú fara í nýstárlega meðferð á hné þar sem blóði úr bólgnu hné hans er sett í skilvindu og svo sprautað aftur inn í hnéð. Þeytivindan á að mynda blóðvökva án storknunarþátta og það á síðan að hjálpa til við að minnka bólgurnar. Kobe Bryant varð 35 ára gamall í ágúst en hann hefur spilað í NBA-deildinni frá árinu 1996 og er einn sigursælasti og stigahæsti leikmaður sögunnar í NBA.
NBA Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Fótbolti Fleiri fréttir Valur - Njarðvík | Meistararnir á Hlíðarenda Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Sjá meira