Lífið

Hatar Justin Bieber

Söngkonunni Taylor Swift er ekki vel við samband bestu vinkonu sinnar, söng- og leikkonunnar Selenu Gomez, við poppprinsinn Justin Bieber. Justin og Selena hættu saman fyrr á árinu en sífellt heyrast fregnir um að þau ætli hugsanlega að taka aftur saman.

“Taylor hatar hann. Henni finnst Selena gera mistök í hvert skipti sem hún sættist við hann. Bieber hefur stíað stelpunum í sundur,” segir vinur Taylor í samtali við Us Weekly. Að sögn vinar Justins er popparanum ekki heldur vel við Taylor.

Taylor, Selena og Justin.
“Hann kvartar yfir því að Taylor sé alltaf að segja við Selenu að hún geti gert betur.”

Bestu vinkonur.
Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.