Tíska og hönnun

Hann segir mér ekki hvernig ég á að klæða mig

Leikkonan Blake Lively er vön því að eyða miklum tíma í búningamátun eftir að hafa leikið í sex seríum af Gossip Girl. Hún segist klæða sig eftir skapi.

“Ég hugsa aldrei um það hvernig öðru fólki finnst klæðaburður minn. Fötin mín endurspegla það hvernig mér líður,” segir Blake í viðtali við tímaritið Lucky.

Blake kann að klæða sig.
Blake giftist leikaranum Ryan Reynolds í september í fyrra og leyfir honum ekki að stjórna klæðaburðinum þó hann hafi vissulega áhrif.

Töfrandi stúlka.
“Ég er heppin að vera með manni sem hefur betri smekk en ég. Við höfum áhrif á hvort annað á mismunandi hátt.”

Hjónasvipur með þeim.
Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.