Sport

Sharapova og Serena sýna klærnar

Sharapova og Serena.
Sharapova og Serena.
Það er ekki gott á milli tennisstelpnanna Mariu Sharapovu og Serenu Williams. Þær skiptast nú á skotum utan vallar.

Williams lét Sharapovu heyra það á dögunum en Sharapova virðist fara verulega í taugarnar á henni.

"Hún byrjar öll viðtöl á að segja hvað hún sé hamingjusöm og lukkuleg. Það er svo ótrúlega leiðinlegt. Ef hún vill síðan vera með manni með svart hjarta þá er það hennar mál," sagði Williams en Sharapova ku vera að slá sér upp með Grigor Dimitrov en hann var áður með Serenu.

Sharapova sat ekki þegjandi undir kjaftinum í Serenu.

"Við berum mikla virðingu fyrir hvor annarri á vellinum. Hún ætti samt að einbeita sér að því að tala um sjálfa sig en ekki aðra. Ef hún vill tala um einkamál fólks þá ætti hún kannski að tala um hennar eigin samband. Kærastinn hennar var giftur er þau byrjuðu saman og á börn," sagði Sharapova hvöss.

Serena er sögð vera með Patrick Mouratoglou, þjálfara sínum, en parið hefur ekki enn viljað staðfesta samband sitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×