Forstjóri Toyota fær lægstu launin fyrir besta árangurinn Finnur Thorlacius skrifar 26. júní 2013 10:45 Akio Toyoda forstjóri Toyota
Forstjórinn með viðeigandi nafnið, Akio Toyoda, hjá Toyota er með lægstu laun 5 stærstu bílaframleiðendanna. Þrátt fyrir það skilaði fyrirtæki hans mesta hagnaði allra bílaframleiðenda í fyrra. Svo rammt kveður við að laun Toyoda eru aðeins tíundi hluti launa forstjóra þess sem hæst hefur launin. Hlutabréf í Toyota hafa hækkað um 28% í ár svo hluthafar í Toyota ættu að vera ánægðir með störf Toyoda og gætu því umbunað honum betur. Til samanburðar hafa hlutabréf í Volkswagen lækkað um 11%, GM hækkað um 12%, Daimler hækkað um 12% og Ford hækkað um 18% á árinu. Þessi fjögur bílafyrirtæki fylla hóp þeirra 5 stærstu með Toyota. Forstjórinn Akio Toyoda hefur ekki glímt við nein smávandamál síðan hann tók við árið 2009, eða stóra jarðskjálftann í Japan sem fór illa með Toyota og endurkallanir á mörgum milljónum Toyota bíla vegna galla. Samt hefur hann komið Toyota aftur á stall sem stærsti bílaframleiðandinn sem skilar mestum hagnaði til eigenda sinna. Í sjálfu sér er Toyoda á ágætum launum og hækkaði um 35% í fyrra frá árinu 2011, sem mörgum þætti ágætt. Flestir vilja meina að hinir stóru forstjórarnir séu stórlega yfirlaunaðir og laun þeirra séu út í hött og í engum takti við raunveruleikann. Til dæmis voru laun launahæsta forstjórans í fyrra, Alan Mulally hjá Ford 21 milljón dollarar, eða 2.583 milljónir króna og verður mörgum óglatt við þá tölu.
Mest lesið Segist saklaus Innlent Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Innlent Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Innlent Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Innlent Sýknudómur í hryðjuverkamálinu ómerktur Innlent Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Erlent Mojtaba Khamenei særður en óhultur Erlent Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Innlent Orðhengilsháttur vill einkenna ESB-umræðuna Innlent Rúv er óháð hagsmunum stjórnmála og einkaaðila Innlent