Le Mans sigurvegara mistókst að stinga af lögregluna Finnur Thorlacius skrifar 25. apríl 2013 13:15
Endaði á vegg eftir háhraðaeltingarleik með vínanda og eiturlyf í blóði. Þrátt fyrir alla sína ökuhæfni tókst Jaime Melo ekki að stinga af lögregluna í Brasilíu heldur endaði á húsvegg og var færður í járn í kjölfarið. Málsatvik voru þau að Melo lenti í útistöðum við mann fyrir utan næturklúbb og þegar lögreglan kom og ætlaði að skikka leikinn steig Melo uppí bíl sinn og ók af stað án þess að kveikja ökuljósin. Hófst þá háhraðaeltingaleikur sem endaði á húsvegg en Melo gafst þó ekki strax upp heldur tók á rás á tveimur jafnfljótum en lögreglan var fótfrárri. Það hefur ekki hjálpað Melo, hvorki undir stýri eða á hlaupum að hann var bæði undir áhrifum áfengis og eiturlyfja og ekki mun það minnka refsingu hans að hann hafði misst ökuskírteinið áður og mátti því alls ekki aka bíl. Það er nokkuð pínlegt fyrir mann sem unnið hefur Le Mans keppnina tvisvar sinnum, árin 2008 og 2009 á Ferrari GT2 bíl. Hann vann einnig þolaksturskeppnina í Sebring árið 2007 og ALMS GT2 keppnina sama ár. Melo er nú á reynslulausn eftir að hafa greitt himinháa tryggingu og er staddur í Evrópu að undirbúa sig fyrir aksturkeppni. Í meðfylgjandi myndskeiði sést Jaime Melo við öllu skemmtilegri aðstæður.
Mest lesið Dr. Bjarni er látinn Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Erlent Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Innlent Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Innlent Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent Eyjamenn eigi Heimaklett og engin innistæða fyrir kröfum ríkisins Innlent Lögreglan á Austurlandi tók þátt í stórri alþjóðlegri lögregluaðgerð Innlent
Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent
Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent