Clippers sópaði Lakers | Tólfti sigur New York í röð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. apríl 2013 22:37 Kobe Bryant í baráttunni. Mynd/AP
LA Clippers hafði betur gegn grönnum sínum í LA Lakers í NBA-deildinni í körfubolta í kvöld, 109-95. Með sigrinum náði Clippers að tryggja sér efsta sæti Kyrrahafsriðilsins í Austurdeildinni en þetta er í fyrsta sinn sem liðið vinnur þann titil í sögu félagsins. Clippers hefur lengi staðið í skugga Lakers en ekki þetta tímabilið. Clippers náði nefnilega að vinna alla fjóra leiki sína gegn Lakers í ár og „sópa" þannig stóra bróður. Blake Griffin var með 24 stig fyrir Clippers og tólf fráköst en Chris Paul var með 24 stig og tólf stoðsendingar. Hjá Lakers voru Kobe Bryant og Dwight Howard með 25 stig hvor en þeir Steve Nash og Metta World Peace voru báðir frá vegna meiðsla. Lakers er nú dottið fyrir neðan Utah og í níunda sæti Vesturdeildarinnar. Átta efstu liðin komast í úrslitakeppnina. Þá vann New York sinn tólfta sigur í röð er liðið mætti sterku liði Oklahoma City á útivelli og vann, 125-120. Carmelo Anthony fór sem fyrr á kostum og skoraði 36 stig. Hann hefur því skorað alls 167 stig í síðustu fjórum leikjum New York sem virðist til alls líklegt í úrslitakeppninni sem er fram undan. Anthony hefur nú tekið fram úr Kevin Durant í kapphlaupinu um stigakóngstitilinn en Durant skoraði 27 stig í kvöld. New York er í öðru sæti Austurdeildarinnar en Oklahoma er í öðru sæti í vestrinu.
NBA Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Landsliðskona í Val Handbolti „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Fleiri fréttir „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Sjá meira