Lífið

Hlýleg stemning

Ellý Ármanns skrifar
Útgáfu bókarinnar Hlýir fætur var fagnað í Eymundsson, Skólavörðustíg í gær en höfundar hennar eru Ágústa Þóra Jónsdóttir og Benný Ósk Harðardóttir.

Þessi bók er frábær fyrir alla áhugasama um sokkaprjón en hún inniheldur 54 gullfallegar uppskriftir að sokkum fyrir börn og fullorðna. Nú þegar páskarnir eru á næsta leiti er kjörið tækifæri að taka upp prjónana og skella í eina sokka.

Bókin er prýdd líflegum myndum og aðgengilegum leiðbeiningum sem gera fjölbreytt sokkaprjón að leik einum!

Sjá nánar um bókina hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.