Eyjólfur til Midtjylland í sumar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. febrúar 2013 09:21 Eyjólfur í leik með SönderjyskE. Nordic Photos / Getty Images
Eyjólfur Héðinsson mun í sumar skipta um félag í Danmörku og ganga til liðs við Midtjylland. Hann er nú á mála hjá SönderjyskE. Þetta kemur fram í danska blaðinu Ekstra Bladet í dag. Þar segir að Eyjólfur hafi átt í viðræðum við SönderjyskE um nýjan samning í nokkurn tíma en að Midtjylland hafi blandað sér í málin og náð samkomulagi við Eyjólf um samning sem taki gildi þann 1. júlí næstkomandi. Eyjólfur á aðeins hálft ár eftir af sínum samningi við SönderjyskE og því er honum, eins og öðrum knattspyrnumönnum í sömu stöðu, frjálst að ræða við önnur félög. Hann var einnig orðaður við AC Horsens. Eyjólfur er markahæsti leikmaður SönderjyskE með sex mörk á tímabilinu og einn mikilvægasti leikmaður liðsins. Segir í grein blaðsins að liðið hafi hrunið þegar að Eyjólfur meiddist í haust og var frá í nokkurn tíma. Hann náði sér svo vel á strik eftir meiðslin og skoraði í síðustu fjórum leikjum liðsins fyrir vetrarhlé. Midtjylland er í áttunda sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með 22 stig en SönderjyskE í níunda sæti, aðeins einu stigi á eftir. Þessi lið mætast einmitt í fyrstu umferð deildarinar eftir vetrarfrí, þann 2. mars næstkmoandi.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Enski boltinn LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Körfubolti Veðjar öllum ágóðanum af bardaga sínum á sigur Tysons Sport Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Benni og Drungilas mæta á gamla heimavöllinn Sport Fleiri fréttir Bein útsending: Blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Englendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikklands Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Nýstárlegur undirbúningur fyrir landsleik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Gæti fengið sjö leikja bann fyrir rasisma í garð samherja Kane gagnrýnir þá sem drógu sig út úr landsliðshópnum Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Ný keppni FIFA sem enginn virðist vilja spila í „Vinsamlegast látið hann í friði“ Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Sjá meira