NBA í nótt: Besta liðið tapaði | Kobe með 40 stig Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. febrúar 2013 11:00 Curry verst hér Tony Parker í leik Golden State og Golden State. Mynd/AP
Golden State vann afar óvæntan sigur á San Antonio, 107-101, í NBA-deildinni í nótt en þá fóru alls tólf leikir fram. San Antonio er með bestan árangur allra liða í deildinni og hafði unnið fimm leiki í röð og sextán í röð gegn Golden State. Þetta var aðeins annar tapleikur liðsins í síðustu átján leikjum. Jarret Jack var með 30 stig og tíu stoðsendingar hjá Golden State og David Lee með 25 stig og 22 fráköst. Stephen Curry átti einnig góðan leik en hann var með átján stig og sex stoðsendingar. Golden State var þrettán stigum undir í fjórða leikhluta en náði með góðum lokaspretti að tryggja sér sigur. Curry fór þá fyrir sínum mönnum eins og svo oft áður. Danny Green skoraði 20 stig fyrir San Antonio og Tim Duncan nítján auk þess að taka átján fráköst. Kobe Bryant átti stórleik þegar að LA Lakers vann Portland, 111-107. Hann skoraði 40 stig en fyrr í gær var eigandi Lakers, Jerry Buss, borinn til grafar. Dwight Howard skoraði nítján stig og var með sextán fráköst en þetta var sjöundi sigur Lakers í síðustu tíu leikjum. Liðið er þó enn í níunda sæti Vesturdeildarinnar. New York tapaði fyrir Toronto, 100-98, og þar með sínum fjórða leik í röð í deildinni. Rudy Gay skoraði 32 stig fyrir Toronto. Oklahoma City batt hins vegar endi á þriggja leikja taphrinu með sigri á Minnesota, 127-111. Russell Westbrook var með 37 stig og Kevin Durant 27.Úrslit næturinnar: Toronto - New York 100-98 Washington - Denver 119-113 Charlotte - Chicago 75-105 Indiana - Detroit 114-82 Brooklyn - Houston 96-106 Atlanta - Sacramento 122-108 Memphis - Orlando 88-82 New Orleans - Dallas 100-104 Oklahoma City - Minnesota 127-111 Phoenix - Boston 88-113 LA Lakers - Portland 111-107 Golden State - San Antonio 107-101
NBA Mest lesið Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið Golf Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira