Tíska og hönnun

Vel klæddir karlmenn á verðlaunahátíð

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
BAFTA verðlaunahátíðin var haldin við hátíðlega athöfn í Konunglega óperuhúsinu í London í gærkvöldi. Eins og gengur og gerist mæta stjörnurnar í sínu fínasta pússi á viðburð sem þennan, en það voru þó ekki eingöngu kjólarnir sem vöktu athygli þetta árið. Karlmennirnir voru líka einstaklega smekklegir og fínir til fara.

Damian Lewis í dökkgrænum jakkafötum frá Burberry með eiginkonuna upp á arminn.
Ben Affleck glæsilegur í Gucci.
Bradley Cooper rennandi blautur en alltaf flottur.
Eddie Redmayne í Burberry.
Hugh Jackman í Lanvin jakkafötum og frakka.
Sjarmatröllið George Clooney ber aldurin vel og hefur sjaldan litið betur út. Hann er í flottum frakka yfir jakkafötin enda vitlaust veður í London í gær.
Javier Bardem flottur í Gucci.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.