Tíska og hönnun

Öðruvísi eyeliner

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Við skyggndumst á bak við tjöldin hjá tískuhúsinu Rag & Bone og skoðuðum förðunina sem notuð var við nýjustu línu þeirra. Eyelinerinn er í aðalhlutverki,notaður á skemmtilegan og grafískan hátt.

,Eyelinerinn gerir fyrirsætuna töffaralega og fallega á sama tíma. Fyrst ætluðum við að hafa línuna fyrir ofan augað í skærum litum en svo fannst mér það bara alls ekki passa fyrir Rag & Bone. Við prófuðum líka hvítan, en á endanum var það svarti einfaldi liturinn sem hentaði best", segir Gucci Westman, manneskjan á bak við förðunina. Hún segist hafa leitað til sjöunda áratugarins eftir innblæstri.

Einfalt en öðruvísi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.