Schwimmwagen fór allt 12. febrúar 2013 10:45 Niðurfellanleg bátsskrúfa er aftan á bílnum, pústkerfið ofan á skottinu og áföst byssa að framan
Mest framleiddi lands- og láðarbíll í heimi. Smíðaðir voru 14.265 Schwimmwagen bílar í seinna stríðinu fyrir þýska herinn, 163 þeirra eru enn til og aðeins 13 í upprunanlegu ástandi. Þessi söfnunargripur er um margt óvenjulegur bíll og orðinn mjög fágætur, en kaupandi hans þarf að punga út að lágmarki 185.000 dollurum til að krækja í hann á uppboði sem brátt fer fram á bílnum í Connecticut. Það sést glögglega á bílnum er hann smíðaður til óvenjulegra nota, en Scwimmwagen er, eins og nafnið bendir til, bíll sem kemst áfram í vatni og flýtur eins og bátur. Hann er með utanborðsmótor sem fella má niður ef farið er um vatn og þá virka framhjólin sem stýri eins og á föstu undirlagi. Hann er alveg sléttur að neðan sem bátur en mjög háfættur. Í honum er 25 hestafla fjögurra strokka línuvél með 4 gíra kassa og fjórhjóladrifi sem virkaði í fyrsta gír og bakkgír, en fór af í hærri gírum. Schwimmwagen var framleiddur af Volkswagen á árunum 1942-44 og er sá bíll sem framleiddur hefur verið í flestum eintökum af lands- og láðarbílum. Eins og sést á myndinni er áföst byssa framan á bílnum. Pústkerfið er fyrir ofan skottið því ekki getur það verið neðarlega á bíl sem ferðast í vatni.Schwimmwagen - tilbúinn í vatnaferðir sem á föstu landi
Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Nálgist neyðarástand Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Lentu aftur í óförum Innlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent